Byrjaðu 10 daga prufu
Sylvía með handlóð

Optimal Health · 10 daga prufa

10 dagar til að finna orkuna aftur. Á þínum hraða.

Fullur aðgangur að öllu sem er inni: æfingum, hugaræfingum, endurheimt, samfélaginu og stuðningi frá mér.

Þú þarft ekki að byrja fullkomlega. Þú þarft bara að taka næsta skref.

Verðið, hreint út

Í dag: 0 kr

Eftir 10 daga: 16.900 kr á mánuði

Binding: engin

Þú færð aðgang strax og áskriftin fer sjálfkrafa af stað þegar tíu dagarnir eru liðnir.

Þú segir sjálf upp inni á síðunni þinni hvenær sem er og það tekur tvo smelli. Ég segi þér þetta hreint út svo ekkert komi þér á óvart.

Styrkurinn

Mörg stéttarfélög greiða hluta af heilsurækt og þjálfun, oft tugi þúsunda á ári.

Flestar konur sækja aldrei um. Eitt símtal í þitt félag gefur þér svarið og það getur lækkað mánaðarverðið verulega.

Hvað gerist þegar þú skráir þig

1.  Þú færð aðgang að öllu strax, í símanum og tölvunni.

2.  Ég sendi þér hvar þú átt að byrja. Ein æfing, valin fyrir þig, og þú þarft ekki að svara neinu.

3.  Þegar þú vilt máta vikuna þína við planið þá segirðu mér frá henni og við finnum réttu æfingarnar saman.

Þetta er fyrir þig ef þú vilt

  Meiri orku án þess að snúa öllu lífinu á hvolf.

  Meiri styrk í líkama og hugarfari.

  Rútínu sem virkar líka í ófullkomnum vikum.

  Stuðning, ekki bara æfingasafn.

Innifalið í Optimal Health

Styrktaræfingar fyrir ræktina, heima og hlaupin, 20 til 30 mínútur í senn.

Sex vikna áskoranir með nýju þema og hóp sem gengur í gegnum þær með þér.

Yoga, teygjur og hreyfanleiki fyrir dagana á milli.

Hugaræfingar með texta og hljóði, tíu mínútur í senn.

Næring án öfga, uppskriftir og einfalt skipulag.

Optimal Health samfélagið og persónulegur stuðningur frá mér.

Það sem skiptir máli

Markmiðið er ekki að nota allt efnið strax. Markmiðið er að finna eitt skref sem þú getur haldið áfram með, og svo annað.

Stutt frá konunum

„Þetta er allur pakkinn, ekki bara æfingarnar."

Karína

„Dásamlegur stuðningur sem dregur mann áfram. Ekkert eitt fyrir alla, heldur sniðið að þörfum mínum."

Kristín

„Að vinna með Sylvíu hjálpaði mér að setja niður heilsumarkmiðin mín og finna leiðir til að ná þeim."

Drífa

Ef þú ert að velta þessu fyrir þér

„En hvað ef ég byrja og nota þetta ekki?"

Þá byrjum við smærra. Þú þarft ekki að gera allt í einu og þú þarft ekki að vera tilbúin. Ég er hérna á meðan þú finnur taktinn.

„Ég hef engan tíma."

Æfingarnar eru 20 til 30 mínútur og þú velur daginn sjálf. Göngutúrinn í hverfinu telur líka með, hann er hluti af planinu en ekki utan við það.

„Ég er ekki í formi til að byrja."

Það er einmitt það sem við byrjum á. Þú velur þyngdina og hraðann sjálf og hver einasta æfing á sinn rólega valkost.

Tíu dagar. Engin binding. Þú ræður hvort þú heldur áfram. 🤍

Sjáumst hinum megin, Sylvía