“Með því að halda áfram þó dagarnir séu misgóðir — gera eitthvað í staðinn fyrir ekkert — kemst maður alltaf einu skrefi nær.”Hanna

Heildræn þjálfun fyrir betri heilsu, meiri orku, hamingju og sterkari líkama!
Komdu með okkur og náðu árangri – fyrir líkamann, hugann og gleðina!
Optimal Health - fyrir konur sem vilja lifa betur
Optimal Health er fyrir konur sem eru tilbúnar að:
-
Hætta að elta skammtímalausnir
-
Byggja upp styrk sem nýtist í daglegu lífi
-
Finna meiri orku og sjálfstraust
-
Fá skipulag og stuðning sem heldur þeim á réttri braut
-
Njóta þess að lifa heilbrigðu lífi – án öfga og pressu
Þegar þú skráir þig færðu aðgang að:
-
Optimal Health prógramminu – styrktaræfingar, yoga, HIIT og fleira
-
Innra svæðinu – einfalt skipulag, nýtt efni í hverjum mánuði
-
Samfélaginu okkar – lifandi net kvenna sem styður og peppar.
-
Persónulegan stuðning frá þjálfara – til að aðlaga, hvetja og aðstoða þig eins og þú þarft
-
Verkfærum fyrir hugarfar og skipulag – svo þú nærð árangri á þínum forsendum
Ertu tilbúin?
Skráðu þig í 10 daga fría prufu, fáðu fullan aðgang að prógramminu og samfélaginu. Ef þetta er ekki fyrir þig – hættir þú og borgar ekkert.
Hanna Kristín
"Ég mæli sko 150% með Optimal Health þjálfun, Sylvía hefur rosalega ástríðu fyrir því sem hún ert að gera og opnar augu manns fyrir því að maður er mannlegur og það koma tímabil sem fara upp og niður og gefur manni trúnna á að maður kemst yfir það og finnur fyrir betri líðan og að það er í raun ekkert sem stoppar mann þegar maður hefur trú á sér!"
Sara María
"Það hefur reynst mér alveg virkilega vel að vinna með Sylvíu og Optimal Health þjálfuninni og hún hefur hjálpað mér að þjálfa upp bæði líkama og sál, hjálpað mér að sjá þessa fallegu konu sem ég er og hitti á hverjum morgni í speglinum, hjálpað mér að skilja að það þarf ekki alltaf að gera allt 100%, hjálpað mér að skilja að það er í lagi að breyta planinu og svo mætti lengi telja."
Drífa
Hvað er í boði?
Heildræn þjálfun með Optimal Health
Fullkomin áskrift sem inniheldur allt sem þú þarft til að bæta heilsuna – og veitir þér aðgang að þjálfara og stuðningi. Prófaðu ókeypis í 10 daga!
Heilsumarkþjálfun
Fáðu aðstoð til að kafa dýpra og breyta venjum til langs tíma, samhliða jákvæðum heilsubreytingum.
Fáðu FRÍTT 10 daga Energy Reset Prógramið!
10 dagar til að endurstilla orkuna, rútínuna og tenginguna við líkamann.
Raunhæft plan, æfingar og fleira, sem hjálpar þér að líða betur – án öfga.
Fylltu út upplýsingarnar hér að neðan til að byrja.
Optimal Health · Heildræn þjálfun fyrir konur
Komdu aftur til þín með styrk, orku og rútínu sem endist.
Optimal Health er fyrir konur sem vilja hreyfa sig, styrkjast og líða betur án öfga, pressu eða allt-eða-ekkert hugsunar.
Hér færðu æfingar, hugaræfingar, endurheimt, samfélag og persónulegan stuðning sem hjálpar þér að halda áfram í raunverulegu lífi.
Fullur aðgangur í 10 daga. Mánaðarleg áskrift eftir prufu. Engin binding.
Fyrir hverja er Optimal Health?
Fyrir konuna sem vill passa betur upp á sig en vill ekki fara aftur í öfgar.
Kannski veistu alveg hvað þú “ættir” að gera. En það sem þig vantar er ekki meiri pressa.
Þig vantar ramma sem heldur, stuðning sem nær til þín og leið til að koma aftur þegar lífið verður ófullkomið.
- ✓Þú byrjar af krafti en missir taktinn þegar lífið verður óskipulagt.
- ✓Þú ert búin að gefa mikið og finnur að það er kominn tími til að koma aftur til þín.
- ✓Þú vilt stuðning, ramma og hlýju, ekki meiri pressu eða fullkomnunarhugmyndir.
Inni í Optimal Health
Æfingar, hugaræfingar og stuðningur á einum stað.
Þú færð skýrt prógram, en þú þarft ekki að gera allt í einu. Við byrjum þar sem þú ert og byggjum upp það sem hjálpar þér að halda áfram.
- ✓Styrktaræfingar sem hjálpa þér að byggja upp kraft, stöðugleika og meiri trú á líkamanum.
- ✓Yoga, teygjur og hreyfanleiki fyrir mýkt, endurheimt og betri tengingu við líkamann.
- ✓Hugaræfingar fyrir sjálfstraust, rútínu og allt-eða-ekkert hugsun.
- ✓Plön og áskoranir þegar þú vilt ekki þurfa að hugsa hvað þú átt að gera næst.
- ✓Samfélag kvenna sem eru líka að læra að halda áfram án öfga.
- ✓Persónulegur stuðningur frá Sylvíu svo þú sért ekki ein með ferlið.
Ekki bara æfingar
Það sem skiptir máli er ekki bara hvað þú gerir, heldur að þú lærir að koma aftur.
Í Optimal Health færðu ekki bara æfingar til að fylgja.
Þú færð kerfi sem hjálpar þér að byggja upp orku, styrk og rútínu án þess að fara í öfgar eða gefast upp þegar vikan verður ófullkomin.
Æfingarnar eru hluti af ferlinu. Breytingin gerist þegar þú byrjar að treysta þér aftur.
Hvað viltu byggja upp?
Optimal Health hjálpar þér að vinna með það sem skiptir máli í þínu lífi.
Meiri orka
Að vakna ekki alltaf tóm og þreytt.
Sterkari líkami
Að finna kraft, stöðugleika og öryggi í líkamanum.
Betri rútína
Að hafa kerfi sem þú getur komið aftur í.
Meira sjálfstraust
Að byggja upp traust á sjálfri þér með litlum endurteknum skrefum.
Minni öfgar
Að hætta að þurfa allt eða ekkert.
Meiri stuðningur
Að þurfa ekki að halda þessu ein.
Raunverulegar konur. Raunveruleg breyting.
Þær byrjuðu þar sem þær voru og byggðu sig upp skref fyrir skref.
“Þegar mér fór að líka betur við sjálfa mig og minn eigin líkama, þá fór boltinn að rúlla. Þetta er allur pakkinn — ekki bara æfingarnar.”Karina
“Að vinna með Sylvíu hjálpaði mér að setja niður heilsumarkmiðin mín og finna leiðir til að ná þeim. Mér finnst ég loksins trúa því að ég nái markmiðunum mínum.”Drífa
Ég er Sylvía
Ég bjó Optimal Health til fyrir konur sem þurfa ekki meiri pressu, heldur betri stuðning.
Ég trúi því að raunveruleg heilsa þurfi að virka í raunverulegu lífi.
Ekki bara þegar þú ert með fullkomna rútínu. Ekki bara þegar þú ert full af drifkrafti. Heldur líka þegar lífið er fullt, þú ert þreytt og þarft að byrja smátt.
Þú þarft ekki að gera þetta ein. Og þú þarft ekki að vera fullkomin til að byrja.
Þú þarft ekki að halda þessu ein
Stuðningurinn er ekki aukaatriði. Hann er hluti af kerfinu.
Það sem margar konur segja að skipti mestu máli í Optimal Health er ekki bara æfingarnar.
Það er utanumhaldið. Tengingin. Samfélagið. Að einhver minni þig á að þú sért ekki búin að klúðra þó vikan hafi ekki verið fullkomin.
Hér færðu stað þar sem þú mátt mæta eins og þú ert.
Þetta á að virka í lífi sem er lifað.
Ekki bara á fullkomnum mánudegi. Líka þegar þú þarft rólegri dag, styttri æfingu eða einfaldara næsta skref.
Ef þú ert að hugsa...
“En hvað ef ég byrja og nota þetta ekki?”
Þá byrjum við ekki á öllu. Við byrjum á einu skrefi.
Ég hef ekki tíma.
Þá byrjum við smærra. Styttri æfing, göngutúr, teygjur eða eitt skref sem passar inn í daginn þinn.
Ég dett alltaf út.
Þess vegna er þetta ekki byggt á fullkomnun. Þetta er byggt á því að koma aftur.
Ég er ekki í nógu góðu formi.
Þú þarft ekki að vera komin í form til að byrja. Þú byrjar þar sem þú ert.
Ég veit ekki hvar ég á að byrja.
Þú færð ramma, leiðsögn og stuðning. Þú þarft ekki að finna út úr þessu ein.
Næsta skref
Ef þú ert tilbúin að hætta að bíða, þá er þetta þinn tími.
Þú þarft ekki að finna fullkomna tímann. Þú þarft bara að taka næsta skref.
10 dagar frítt · fullur aðgangur · engin binding