Byrjaðu 10 daga prufu

Optimal Health · 10 daga prufa

Þú ert ekki að byrja upp á nýtt.
Þú ert að halda áfram.

Þú hefur gert þetta áður. Þú veist hvernig það er þegar vikan gengur upp, og þú veist líka hvernig það er þegar hún tekur þetta af þér. Optimal Health er fyrir konuna sem er byrjuð og vill að það haldi.

10 dagar frítt. Svo 14.900 kr á mánuði. Engin binding og þú segir upp hvenær sem er.

Byrjaðu 10 daga prufu
Sylvía Sigurðardóttir, þjálfari og stofnandi Optimal Health

Kannastu við þetta?

Þú veist alveg hvað þú átt að gera.

Sumar vikur rúlla bara. Þú mætir, lyftir, labbar og líður vel í líkamanum.

Svo koma vikur þar sem vinnan, fjölskyldan eða bara lífið tekur plássið… og æfingin er það fyrsta sem fer.

Og kannski er hnéð eða bakið farið að láta aðeins í sér heyra. Ekkert alvarlegt, en nóg til að þú hugsir þig tvisvar um.

Ég þekki þetta svo vel. Það sem hjálpar er plan sem lagar sig að vikunni þinni, og einhver sem tekur eftir því hvernig þér gengur.

Sylvía brosandi á dýnunni heima í stofunni

Af hverju þetta heldur

Þrennt sem æfingamyndbönd gefa þér ekki

Það er nóg til af æfingum á netinu. Þetta er hitt.

Þú þarft ekki að velja sjálf

Hér inni eru mörg prógrömm, þriggja til sex vikna, fyrir ólík dagsform. Þú þarft ekki að vita hvert þeirra á við þig, ég segi þér hvar þú átt að byrja. Og ný sex vikna áskorun fer reglulega af stað þar sem allar konurnar byrja á sama degi.

Æfingar sem má aðlaga

Þegar hnéð, bakið eða öxlin kvartar skiptum við um útfærslu, ekki um æfingu. Þú þarft hvorki að harka af þér né að hætta. Og ef eitthvað er utan míns sviðs segi ég þér það og bendi þér á réttu manneskjuna.

Einhver tekur eftir þér

Þú skrifar mér þegar eitthvað kemur upp og við mátum vikuna upp á nýtt. Það er þess vegna sem hreyfingin heldur, líka þegar vikan fer úr skorðum.

Hvað er innifalið

Markmiðið er ekki að nota allt efnið

Það er að finna dagana sem halda. Vikan er byggð á þremur æfingum, og ein æfing sem er gerð slær þrjár sem eru bara skipulagðar.

Þú velur eftir vikunni þinni, ekki eftir því hvað þú ættir að gera. Sumar æfingar eru kraftmiklar, aðrar rólegri. Báðar telja.

Inni í áskriftinni

—  Æfingaplön sem þú gerir heima, með lágmarksbúnaði. Ræktin og hlaupin eru líka í boði ef þig langar

—  Sex vikna áskoranir sem allar konurnar byrja á sama degi

—  Upphitun og teygjur fylgja hverri viku, tilbúnar

—  Jóga, mobility og teygjur fyrir dagana þegar þig vantar hitt

—  Hugaræfingar fyrir rútínu, sjálfstal og sjálfstraust

—  Næring án öfga, engin talning og enginn kúr

—  Optimal Health Samfélagið, lokaður hópur þar sem konur skrifa saman á hverjum degi

—  Persónulegur stuðningur frá mér

Sylvía Sigurðardóttir, stofnandi Optimal Health

Hver ég er

Ég bjó þetta til af því ég fann það hvergi sjálf

Ég heiti Sylvía. Ég byrjaði á sjálfsvinnu átján ára og hef haldið henni áfram síðan, líka á árunum sem voru þung. Ég er ekki að selja þér hugmynd. Ég er að rétta þér verkfærin sem ég nota sjálf.

Ég vinn hægt. Ég lofa engu sem ég get ekki staðið við. Og ég segi þér þegar eitthvað er utan míns sviðs, og hvern þú átt að hitta.

Þú velur mig ekki af því ég er háværust. Þú velur mig af því ég skil þig.

Frá konunum

Engin fullkomnun. Bara konur sem héldu áfram.

„Sylvía opnar augu manns fyrir því að maður er mannlegur og það koma tímabil sem fara upp og niður, og hún gefur manni trúna á að maður kemst yfir það."

Hanna Kristín

„Ég glími við tvo bólgusjúkdóma. Þess vegna er gott að geta gert þetta á sínum hraða."

Karína

Hljóp sín fyrstu tíu kílómetra í sumar

„Hún hefur hjálpað mér að skilja að það þarf ekki alltaf að gera allt 100%, og að það er í lagi að breyta planinu."

Sara María

Konan sem gerir allt 100%

„Þegar maður tekur dýfur þá eru þær viðurkenndar, og svo liggur leiðin upp á við aftur."

Drífa

Lítið er betra en ekkert

Verðið, sagt hreint út

14.900 kr á mánuði. Engin binding.

Í dag  —  0 kr. Fullur aðgangur í tíu daga.

Eftir tíu daga  —  14.900 kr á mánuði.

Binding  —  Engin. Þú segir upp hvenær sem er.

Pása  —  Þú mátt taka pásu. Sendu mér skilaboð og ég set hana inn.

Þú gefur upp kort við skráningu og prufan fer sjálfkrafa í áskrift eftir tíu daga. Ef þetta er ekki fyrir þig segirðu upp áður og borgar ekkert.

Styrkurinn

Margar konur borga þetta ekki að fullu sjálfar

Stéttarfélögin greiða heilsu- og þjálfunarstyrki og þeir eru hærri en flestar konur halda. Algengt er 50.000 til 75.000 kr á ári, og hjá sumum félögum er ekkert þak. Konur hjá mér hafa fengið áskriftina endurgreidda þannig.

Ein fyrirspurn til þíns félags svarar þessu, og þú færð kvittun fyrir hverri greiðslu.

Nýtt · Ræktin þín

Æfirðu nú þegar í ræktinni?

Þá færðu þitt eigið ræktarplan, vikulega eftirfylgni frá mér og nýtt plan í hverjum mánuði. Öll áskriftin fylgir með. Átta pláss.

Sjá Ræktina þína

Og það er í lagi ef þetta hentar þér ekki

Ef þú ert að leita að skyndilausn eða tölu á vigtinni fyrir jól, þá er ég ekki manneskjan. Hér er engin megrun, engar fyrir-og-eftir myndir og ekkert átak. Ég vinn hægt, og það er ástæðan fyrir því að það endist.

Ef þú ert að hugsa

Spurningarnar sem konur senda mér

Prufan er opin

Tíu dagar, fullur aðgangur, engin binding. Þetta eru bara opnar dyr. Þú ræður hvort þú gengur inn. 🤍

Byrjaðu 10 daga prufu

14.900 kr á mánuði eftir prufu. Segðu upp hvenær sem er.

Sylvía með handlóð heima í stofu

Sterk miðja á fimm mínútum, frítt

Fjórar hreyfingar fyrir miðjuna, fimm mínútur og engin tæki. Þú getur tekið hana í stofunni í dag. Ég sendi hana beint í pósthólfið þitt.