Sterk hné

Tvær æfingar fyrir vöðvana sem bera hnén þín. Engin hopp, engin tæki nema stóll og teygja.

Sylvía í einfættri æfingu með lóð, styrkir vöðvana í kringum hnén

Sæktu æfingarnar þínar 🤍

Þú færð æfingarnar strax á næstu síðu 🤍

Hnén þín bera þig upp stigann í vinnunni, niður úr strætó og upp á þriðju hæð með innkaupapokana. Þau gera það á hverjum degi og þú tekur ekkert sérstaklega eftir því fyrr en þau fara að minna á sig.

Vöðvarnir í kringum hnéð eru þeir sem taka mesta höggið af því. Læri, rass og mjaðmir. Þegar þeir eru sterkir vinna þeir vinnuna sína, og þá þarf hnéð að gera minna.

Ég setti saman tvær æfingar úr safninu mínu sem gera nákvæmlega það. Sú fyrri er átta mínútur og hún ein og sér er nóg til að byrja. Sú seinni bætir við stöðugleikanum þegar þig langar í meira.

Þú getur gert hvoru tveggja heima í stofunni.

Þetta færðu

  • Æfing 1 · Afturstig með hnélyftu og wall sit · 8 mín
  • Æfing 2 · Hliðarlunges, step down og monster walks · 11 mín
  • Þú þarft vegg, stól eða tröppu, og mini teygju í þá seinni
  • Engin hopp